Mig langar að koma með smá pistil hérna um stuðning fólks
gagnvart liðinu sem okkur ætti að þykja annt um þá á ég við
Víðir.
Ég hef ferðast víðsvegar um landið undanfarið þar sem ég hef
verið að dæma og get ég nefnt dæmi eins og Seyðisfjörður og
Hornafjörður. Þessir 2 staðir eru sennilega álíka stórir og
Garðurinn, en það sem þessir staðir hafa framyfir Garðinn
er það að þau hafa félag í 2. deild en það höfum við ekki, allavega
ekki þetta sumarið, vonandi samt næsta sumar. En það sem þessi
pistill á að snúa um eru stuðningsmennirnir. Já, en og aftur ættu
Garðmenn að fá skömm í hattinn fyrir hreint arfaslakan stuðning og
er ég ekki frá því að við höfum slöppustu stuðningsmennina, hvað
veldur?? Því get ég ekki svarað. Það er sorglegt að sjá það að í
1300 manna bæjarfélagi skuli einungis mæta 30-40 manns á leiki ef
það þá nær þeirri tölu. Það er bara sorglegt ef við horfum til þess
að á leik sem ég var síðastliðinn laugardag á Seyðisfirði sem er
ekki nema 727 manna byggðarfélag(heimild: Hagstofa), þá mættu í
kringum 150 manns á leikinn. Mér varð brugðið ég hafði ekki búist
við mörgum þarna en svo kom annað á daginn. Ekki nóg með það að
þarna voru saman komin hópur 150 dyggra stuðningsmanna Hugins á
Seyðisfirði heldur sýndu þau stuðning sinn allann tímann og öskruðu
hvatningarorð og allir skemmtu sér konunglega. Kannski að
meginástæaðan fyrir þessum fjölda á leikin sé góð kynning á
leiknum. Ég var mættur tímanlega á Seyðisfjörð eða 2 og hálfum tíma
fyrir leik og ákváðum við dómararnir bara að rölta útá völl og
skoða aðstæður sem voru alveg þokkalegar, skyndilega heyrum við
sírenuvæl og svo heyrum við það að það er verið að kalla í
eitthvert kallkerfi að það eigi allir að mæta á völlin á Huginn -
Selfoss klukkan 14:00 á Seyðisfjarðarvelli. Þetta var eitthvað sem
maður heyrir ekki venjulega. En svei mér þá bara það að einhverjir
guttar tóku sig saman fengu lánaðann bíl Björgunarsveitarinnar á
staðnum og keyrðu í hverja einustu götu og vöktu athygli á þessum
leik. Þeir uppskáru eins og þeir sáðu. Ekki er hægt að kenna því um
að það kosti á leikina í Garðinum því að það kostaði 600 kall á
leikin fyrir austann.
Ég veit ekki kæru Víðismenn hvað það sé sem veldur því að fólk
mæti ekki og öskri, því miður eru bara alltof fáir sem elska þetta
félag og hafa vilja til að styðja það áfram í gegnum erfiða tíma
sem við göngum í gegnum. Einungis örfáar hræður öskra liðið áfram
og er þar fremst í flokki Eva Rut Vilhjálmsdóttir og á hún bara
hrós skilið fyrir sitt framlag. Þegar ég mæti á leiki þá finnst mér
sorglegast að sjá gömlu kempurnar sitja bara upp í stúku og bara
þegja, hvað þá þegar maður sér þetta fólk sitja inn í bíl, það er
enn þá verra. Svo oft á tíðum þá er liðið bara gagnrýnt þegar illa
gengur en um leið og vel gengur þá er ekki verið að hrósa þessum
strákum sem eru að gera hvað þeir geta til að koma liðinu aftur upp
í 2.deild og svo síðar vonandi ofar.
Ég ætla ekki að efast um það að einhvern daginn þá lagast þetta
og fólk fari aðeins að spýta í lófana og mæta á Garðsvöll sem er í
dag einn glæsilegasti völlur landsins og megum við vera stolt af
Garðsvelli og ekki skemmir fyrir nýja stúkan sem ég verð bara að
hrósa stjórn Víðis fyrir og eiga þeir skilið klapp á kollinn fyrir
að hafa viljað kaupa nokkur sæti. Vonandi góð byrjun að góðum
árangri.
Ég vona innilegaað fólk bæti úr þessu sem allra fyrst og mæti á
Víðir - GG á fimmtudaginn 20 júlí næstkomandi og sýni strákunum
stuðning á móti sterku liði GG.
Svo má bara minna fólk á það að það er reyndar einn leikur áður
og er hann á útivelli og er á móti KV og verður hann spilaður
KR-Velli föstudaginn 14 júlí næstkomandi.
Jæja ágætu lesendur endilega kommentið á þessi skrif mín og
segjið kannski líka vhað má betur fara og annað slíkt.
Ég kveð að sinni og ÁFRAM VÍÐIR
Eðvarð Atli